Tenglar

Psoriasis eykur líkur á of háu kólesteróli

Á síðustu árum hefur komið fram fjöldi rannsókna þar sem sýnt hefur verið fram á tengsl psoriasis og hækkunar á blóðfitu. Kólesteról er mikilvæg blóðfita fyrir líkamsstarfsemi okkar en ef það er of hátt eykur það líkur á hjarta- og æðasjúkdómum. Ekki er þekkt hvers vegna of hátt kólesteról fylgir psoriasissjúkdómnum. Of háu kólesteróli fylgja engin líkamleg einkenni, en æðarnar geta skemmst sem getur leitt til hjarta- og æðasjúkdóma síðar á ævinni. Það er því mjög mikilvægt að greina kólesterólshækkun snemma þannig að hægt sé að lækka kólesterólið og draga þannig úr líkum á hjarta- og æðasjúkdómum.


Viðmiðunarmörk kólesteróls eru eftirfarandi:

koleterol

Æskilegt er að HDL kólesteról (góða kólesterólið) sé hærra 1,1 mmol/l og að LDL kólesteról (vonda kólesterólið) ekki hærra en 3,37 mmol/l.

Varðandi mataræði sem getur gagnast þeim sem hafa of hátt kólesteról þá bendum við á umfjöllun hér á eftir:


Kólesteról - upplýsingabæklingur Hjartaverndar sem m.a. fjallar um mataræði
Ráðleggingar Lýðheilsustofnunar um mataræði (almennt)
Ég er með of hátt kólesteról – hvað er til ráða? - Umfjöllun á doktor.is

Ef breytt mataræði bætir ekki kólesterólsgildin, eða ef gildi þitt er mjög hátt er rétt að leita ráðgjafar hjá hjartalækni, efnaskiptalækni eða heimilislækni.

Til minnis - Gildin þín:
kolesterol2

Inntaka í psoriasisrannsóknirnar gengur hraðar en áætlað var

Mun hraðar hefur gengið að taka inn nýja sjúklinga í psoriasisrannsóknirnar en áætlað var. Viið höfðum áætlað að ljúka inntöku nýrra sjúklinga í byrjun árs 2012. Hins vegar eru nokkrar vikur síðan græna rannsóknin(ERASURE) fylltist, en nýlega fylltist bláa rannsóknin(FIXTURE). Samtals voru því teknir á milli 40 og 50 sjúklingar inn í þessar rannsóknir.

Í síðustu viku fengum við heimild til að bæta við sjúklingum í bláu rannsóknina. Við getum því tekið á móti um 20 nýjum sjúklingum á næstu vikum. Fyrstur kemur fyrstur fær.

Fyrsti sjúklingur tekinn inn í psoriasisrannsóknina

cutis_hjfr
Fyrsti sjúklingurinn var tekinn inn í psoriasisrannsóknina í dag. Á myndinni hér fyrir ofan má sjá hjúkrunarfræðingana sem starfa við rannsóknirnar. Frá vinstri: Signý Þórarinsdóttir, Heiða Magnúsdóttir, Sigríður Ólafsdóttir og Ása Fríða Kjartansdóttir.

handtolva
Í rannsókninni fær hver sjúklingur sérstaka nettengda handtölvu þar sem hann skráir í sérstakt kerfi upplýsingar um líðan sína á hverjum tíma.

Óskað er eftir sjálfboðaliðum frá 18 ára aldri til þátttöku í kínískri lyfjarannsókn á psoriasis

Óskað er eftir sjálfboðaliðum frá 18 ára aldri til þátttöku í kínískri lyfjarannsókn á psoriasis

Rannsóknin hefur fengið leyfi Vísindasiðanefndar, Persónuverndar og Lyfjastofnunar og verður framkvæmd á Húðlæknastöðinni, Smáratorgi 1, Kópavogi. Aðalrannsakandi er Bárður Sigurgeirsson, sérfræðingur í húðsjúkdómum.

Megintilgangur þessarar rannsóknar er að athuga öryggi og verkun rannsóknarlyfsins AIN457 við meðhöndlun á langvinnum skellupsóríasis. Um tvær rannsóknir er að ræða, önnur samanburður við lyfleysu og hin samanburður við lyfleysu og Enbrel®.

Um 2000 einstaklingar með psóríasis í báðum rannsóknum munu taka þátt í rannsókninni víðs vegar um heiminn, þar af rúmlega 50 hér á landi. Þátttaka varir í allt að 60 vikur og gert er ráð fyrir 23 heimsóknum á rannsóknarsetur á tímabilinu.

Áhætta af þátttöku felst í mögulegum aukaverkunum af notkun rannsóknarlyfsins, bæði þekktum og ófyrirséðum. Ekki er hægt að tryggja að þátttakendur fái langvarandi bata af meðferð með rannsóknarlyfinu en niðurstöður rannsóknarinnar geta leitt til framfara í meðferð á psoriasis.
Allur kostnaður vegna rannsóknarlyfsins og læknisheimsókna er þér að kostnaðarlausu, ekki er greitt fyrir þátttöku.

Ef þú hefur áhuga á að fá upplýsingar um rannsóknina, vinsamlegast hafðu samband með því að senda tölvupóst á rannsoknir@hudlaeknastodin.is eða með því að hringja í hjúkrunarfræðing rannsóknarinnar í síma: 520 4409 / 520 4414.

Tekið skal fram að þeir sem svara auglýsingunni hafa ekki skuldbundið sig til að taka þátt í rannsókninni. Taki þeir þátt, geta þeir dregið sig út úr rannsókninni, án þess að gefa sérstaka ástæðu fyrir ákvörðun sinni.


Undirbúningur fyrir psoriasisrannsóknirnar er á fullri ferð

Hér á neðan má sjá hluta rannsóknarteymisins undirbúa sig fyrir rannsóknirnar:
invmeet1

invmeet2

Hér má sjá þá aðila sem vakta rannsóknina, lyfjafræðing, 4 hjúkrunarfræðinga sem starfa að rannsókninni, auk lækna rannsóknarinnar sem eru alls fimm.