Spurningar og svör varðandi rannsóknina
Við höfum fengið heilmikið af spurningum varðandi rannsóknina. Margar spurningar eiga erindi til allra og munum við birta þær smám saman hér að neðan.
Spurning:
Ég tók eftir að lítill hluti sjúklinganna fær lyfleysu. Það eru því allar líkur á að ég fái virkt lyf, en hins vegar er rannsóknin nokkuð löng og ég er með slæman psoriasis. Ef ég tek þátt gæti ég þurft að hanga í þessari rannsókn í 1 ár á óvirku lyfi, bara "í þágu læknavísindanna?

Svar:
Þakka þér kærlega fyrir þessa spurningu. Það er rétt að lítill hluti sjúklinganna fær lyfleysu (óvirkt lyf), hins vegar ef enginn bati kemur fram er heimilt að gefa þeim sjúklingum virkt lyf í þeim skömmtum sem hafa áhrif á sjúkdóminn.

Má maður búast við aukaverkunum af þessu lyfi?

Öll lyf geta gefið aukaverkanir. Það á einnig við um náttúrulyf og lyf sem hægt er að kaupa án lyfseðils. Það er því ekki hægt að útiloka að þú fáir aukaverkanir af lyfinu. Það er hins vegar fylgst mjög náið með aukaverkunum af læknum og hjúkrunarfræðingum sem starfa við þessa rannsókn og ef þörf er á er lyfjatöku hætt.
Það er hins vegar ánægjulegt að segja frá því að í þeim rannsóknum sem hafa veið gerðar áður á þessu lyfi var engin munur á milli lyfsins og lyfleysu að því er varðar aukaverkanir.

Hvers konar lyf er þetta? Líkist lyfið metótrexat, en ég tók það einu sinni það lyf og þoldi ekki?

Lyfið er í flokki svo kallaðra llíftæknilyfja (biologic drugs). Lyf sem margir þekkja úr þeim flokki eru remicade, enbrel, humira og stelera. Ýmislegt bendir þó til og við bindum vonir við að þetta lyf hafi ýmsa kosta fram yfir eldri lyf í þessum flokki. Um muninn á milli þessara lyfja má lesa í grein um líftæknilyf sem Bárður Sigurgeirsson húðsjúkdómalæknir skrifaði. Greinin birtist í tímariti psoriasissamtakanna (SPOEX) og er birt með góðfúslegu leyfi þeirra. Sjá nánar hér.

Ég er með mjög slæman psoriasis. Húðlæknirinn minni sótti einu sinnu um heimild til að gefa mér líffræðilyf. Þeirri beiðni var hafnað vegna þess að ég vildi aldrei taka metótrexat eða ciclosporin vegna þess að ég hef áhyggjur af aukaverkunum af þeim lyfjum. Fæ ég að taka þátt í rannsókninni þrátt fyrir þetta?

Það eru engar slíkar takmarkanir varðandi þessar rannsóknir.