Hér getur þú fengið ítarlegar upplýsingar um rannsóknina. Um er að ræða skjal sem nefnist "upplýst samþykki". Ef þú ákveður að taka þátt í rannsókninni verður þú beðin(n) að undirrita þetta skjal.

Mikilvægt er að þú lesir vel yfir þessi skjöl áður en þú ákveður að taka þátt í rannsókninni. Þegar þú kemur í fyrstu heimsóknina færðu tækifæri til að spyrja nánar út i framkvæmd rannsóknarinnar.

Um tvær mjög áþekkar rannsóknir er að ræða. Við köllum þær Bláu og Grænu rannsóknina til aðgreiningar. Í stuttu máli er munurinn sá að í Bláu rannsókninni er rannsóknarlyfið (Secukinumab) borið samna við líftæknilyfið Enbrel sem er á markaði hérlendis. Í Grænu rannsókninni eru bornir saman mismunandi skammtar af rannsóknarlyfinu. Starfsfólk rannsóknarsetursins mun velja rannsókn fyrir þig.

Skjölin eru á pdf formi. Nauðsynlegt er að þú hafir Acrobat reader í tölvunni þinni til að geta opnað skjölin. Það forrit er ókeypis og má hlaða af síðu Adobe fyrirtækisins. Hlekk til þess má finna hér til hliðar.

Þú getur opnað skjölin með því að smella á þau hér að neðan.

A2303: FIXTURE
(Bláa rannsóknin)

A2302: ERASURE
(Græna rannsóknin)